Viðar Ingólfsson

Viðar Ingólfsson er fæddur í Reykjavík 30 mai 1983, foreldrar hans eru Ingólfur Jónsson (húsasmíðameistari) og Ragna Halldórsdóttir (hárgreiðslukona). Viðar býr á Kvíarhól í Ölfusi ásamt unnustu sinni Jónu Margréti Ragnarsdóttir sem er af miklum hestamannaættum, Foreldrar hennar eru Ragnar Hinriksson tamningamaður og Helga Claessen,systir hennar er Edda Rún Ragnarsdóttir og maki hennar er Sigurður Vignir Matthiasson.


Viðar Ingólfsson og Taktur frá Tjarnarlandi á Hvítasunnukappreiðum Fáks 2007. Mynd Jens Einarsson

Viðar hefur stundað hestamennsku frá því hann man eftir sér og hefur unnið við tamningar og þjálfun á hrossum síðan 2002. Á keppnisbrautinni hefur Viðar náð frábærum árangri þrátt fyrir að vera ungur að árum. Hann áyfir 20 Íslandsmeistaratitla í öllum flokkum frá barnaflokki og upp í meistaraflokk, meðal stæðstu titla Viðars eru Íslansmeistari í Tölti 2005,2009 og 2010.Landsmótsmeistari í tölti 2008 sigurvegari Meistaradeldar Vís 2007 og 2008 sigurvegari á Fjórðungsmóti 2007 í Tölti,B-Flokki og 100m skeiði, sigurvegari í B-Flokki á Hvítasunnumóti Fáks 2007, sigurvegari í stóðhestakeppni á ístölti þeirra allra sterkustu 2007 og 2008 ásamt því að hafa verið í úrslitum í flest öllum greinum hestamennskunar. Viðar hefur 5 sinnum verið tilnefndur sem íþróttaknapi ársinsog einu sinni hlotið þann titil árið 2008.3 sinnum hefur Viðar verið  tilnefndur sem knapi ársins og árið 2007 var Viðar valinn gæðingaknapi ársins.Tvisvar sinnum verið valinn íþróttamaður Fáks.


Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra – Hofi á FM 05. Mynd Axel Jón Birgisson

Á Kvíarhóli í Ölfusi rekur Viðar Ingólfsson alhliða hestamiðstöð þar sem boðið er upp á þjálfun á kynbóta- og keppnishrossum, tamningar, kaup og sölu á hrossum og reiðkennslu. Á Kvíarhóli er öll aðstaða eins og best verður á kosið, þar er 42 hesta hús allt í einshesta stíum, góð inniaðstaða 13x13m, 250m hringvöllur og frábærar útreiðaleiðir.


Viðar Ingólfsson og Taktur frá Tjarnarlandi á Ístölti “allra sterkustu” 07. Hestafréttir / Fjölnir Þorgeirsson